Persónuvernd á husco.is
Við hjá Húsaklæðningu tökum alvarlega þær skyldur sem fylgja persónuvernd og öryggi persónuupplýsinga og meðhöndlum þær upplýsingar sem koma í gegnum vefinn husco.is í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Hér fyrir neðan förum við yfir hvaða upplýsingar við skráum, með hvaða hætti og í hvaða tilgangi.
Hvaða upplýsingar skráum við og í hvaða tilgangi
Samskiptaupplýsingar:
Þegar þú átt í samskiptum við okkur í gegnum heimasíðuna eða tölvupóst, þá skráum við persónuupplýsingar eins og nafn og netfang auk upplýsinga um samskipti okkar. Það gerum við svo við getum haft samband við þig, stofnað til viðskipta og veitt umbeðna þjónustu.
Vefurinn husco.is notar ekki vafrakökur og safnar engum persónugreinanlegum gögnum sjálfkrafa.
Hvaða heimildir höfum við til að vinna með upplýsingarnar?
Við höfum samþykki frá þér. Þegar þú sendir upplýsingar í gegnum vefinn þá gefur þú leyfi fyrir því að upplýsingarnar séu notaðar í þeim tilgangi sem þeirra er aflað.
Hversu lengi geymum við persónuupplýsingar?
Við geymum persónuupplýsingarnar á meðan þú ert viðskiptavinur okkar.
Upplýsingar til þriðja aðila
Við deilum persónuupplýsingum þínum ekki með neinum utan starfsmanna Húsaklæðningar og þjónustuveitenda á okkar vegum.
Þinn réttur
Samkvæmt 20. grein laga áttu rétt til leiðréttingar, eyðingar og flutnings eigin gagna. Ef þú vilt nýta þér þau réttindi eða hefur spurningar varðandi persónuvernd á husco.is hafðu þá endilega samband á [email protected]
Persónuvernd barna
Við skráum engar persónuupplýsingar um börn yngri en 16 ára.
Breytingar
Við áskiljum okkur rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðu okkar.
Persónuverndarstefna þessi tók gildi 15. júlí 2018.